Kaja - Lífrænt fyrir alla
Nú fást valdar vörur úr matvörulínu Kaja organic ehf hjá Bændum í bænum. Allar vörurnar eru lífrænar, í umhverfisvænum umbúðum og pakkaðar á Akranesi.
Hjá Bændum í bænum fæst m.a.:
Kornflex, sykurlaust
Brúnar linsubaunir
Kakóbaunir, grófmalaðar
Kakó 10-12% fita
Hampfræ
Chiafræ
Kókoshnetumjöl
Örvarót
Flórsykur
Kaja organic ehf er í eigu Karen Emilíu Jónsdóttur og var stofnað í mars 2013. Slagorð fyrirtækisins er „lífrænt fyrir alla“ er þá verið að vísa í verðstefnu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur jöfnuð að leiðarljósi „allir sitji við sama borð“ þegar að viðskiptum kemur, því eru engnir afslættir veittir sama verð fyrir alla. Ef hagstæðari verð næst hjá birgjum njóta allir viðskiptavinir þess.
